Samstarfsaðilar

Brúðkaupssýningin 2011 - Samstarfsaðilar

Jón og Óskar
Brúðkaupssýningin 2011. Grand Hótel ReykjavíkJón & Óskar er alhliða úra-, skartgripa- og gjafavöruverslun sem var stofnsett árið 1971. Verslunin er staðsett að Laugavegi 61, Kringlunni og Smáralind og er ein stærsta og glæsilegasta úra-og skartgripaverslun á Íslandi.

Jón og Óskar munu gefa Palladium Giftingahringa. En hvað er Palladíum? Palladíum er málmur úr platínuflokknum líkt og platína og rhoodium sem hvítagull er húðað með, palladium er notað í betri hvítagullsblöndur til þess að ná blöndunni hvítari. Helstu kostir það endist mjög vel, þarf aldrei að rhoodiumhúða eins og hvítagullið, það fellur ekki á palladium og er mjög góður kostur ofnæmislega, verðið er líka hagstætt erum að bjóða palladium hringa á sama verði og hvítagull.


Krissy Ljósmyndastúdíó
Brúðkaupssýningin 2011. Grand Hótel ReykjavíkHefur mikla reynslu í ljósmyndun og brúðarmyndir þar engin undanteking.
Krissy ljósmyndastúdíó mun gefa gjafabréf í ljósmyndun sem innifelur ljósmyndun í athöfn, brúðarmyndir og 2 tímar í veislunni.



Tvö Hjörtu
TBrúðkaupssýningin 2011. Grand Hótel Reykjavíkvö Hjörtu býður upp á mikið úrval af brúðarkjólum frá þekktum erlendum framleiðendum, svo sem Eternity Bride Ltd og Romantica. Einnig býður verslunin upp á vandaða herrafatalínu frá þýska fataframleiðandanum Masterhand sem hentar við öll tækifæri. Markmið okkar er að veita góða þjónustu og gott verð.

Tvö Hjörtu ætla gefa gjafabréf fyrir leigu á fatnaði fyrir brúðhjónin.


Snyrtistofa Gyðjunnar
Brúðkaupssýningin 2011. Grand Hótel ReykjavíkSnyrtistofan Gyðjan ehf. er ein elsta starfandi snyrtistofa borgarinnar, en með nýju og fersku andliti. Núverandi eigandi, Jónína Kristgeirsdóttir snyrti-og förðunarfræðingur, tók við rekstri stofunnar 1997.

Snyrtistofan Gyðjan mun gefa gjafabréf í dekur fyrir brúðhjónin.

Icelimo
Brúðkaupssýningin 2011. Grand Hótel ReykjavíkIcelimo Luxury Travel  ehf býður þér fjölbreytt úrval af glæsibifreiðum til að njóta stundarinnar með þér og þínum vinum.Icelimo býður þér faglega þjónustu með snyrtilegum bifreiðum og einkennisklædda bílstjóra sem eru þjálfaðir í að láta þér líða vel.Leyfðu okkur að dekra við þig með limousine bifreið frá Icelimo.

Icelimo mun gefa gjafabréf í akstur með limousine bifreið.

Prentmet
Brúðkaupssýningin 2011. Grand Hótel ReykjavíkPrentmet er ein framsæknasta prentsmiðja landsins með alhliða þjónustu og frábært starfsfólk.
Helstu einkenni Prentmets eru hraði, gæði og persónuleg þjónusta. Fyrirtækið er umhverfisvottað og þekkt fyrir að leysa málin og standa við gefin loforð.
Stefnt er að því að ná sterkri markaðshlutdeild til að tryggja eðlilega samkeppni, hátt þjónustustig og faglegan metnað.

Prentmet ætlar að gefa brúhjónum hönnun og prentun á boðskortum fyrir brúðkaupið.

Luxor
Brúðkaupssýningin 2011. Grand Hótel ReykjavíkLuxor er alhliða tækjaleiga og tækjasala fyrir kvikmynda- og sjónvarpsiðnaðinn, atburða- og tónleikafyrirtæki, leikhús, stofnanir og fyrirtæki. Áratuga reynsla starfsmanna tryggir að viðskiptavinurinn fær bestu lausn sem völ er á, með fullkomnasta tækjabúnaði landsins.

bpro
Brúðkaupssýningin 2011. Grand Hótel Reykjavíkbpro er ungt fyrirtæki sem byggir hins vegar á áratuga reynslu. Stofnendur fyrirtækisins eru Baldur Rafn Gylfason og Sigrún Bender. bpro flytur inn vörur frá þremur þekktum byrgjum, label.m, HH SIMONSEN® og Pact.

Aðrir samstarfsaðilar eru Garðheimar og Ölgerðin.
Garðheimar munu gefa blóm og skreytingar fyrir brúðkaupið. En Ölgerðin mun gefa gjafapokar með L’Oréal Youth Code kremalínunni og Oroblu sokkabuxum úr haust- og vetrartískulínunni.

more

Fréttir og tilboð

Gistitilboð í maí

Við fögnum sumrinu með flottu gistitilboði. Tilvalið að njóta fyrstu daga sumarsins í höfuðborginn...

Meira