Fashion with Flavour

Fashion with Flavor tískusýning og matarupplifun

Á Fashion with Flavor verður tískusýning á hágæða íslenskum glæsifatnaði og fylgihlutum frá Arfleifð sem unnir eru úr íslensku hráefni á Grand Hótel Reykjavík.

ArfleifðSex rétta óvenjulegur matseðill úr sama hráefni og á matseðli og íslensk tónlist flutt af Amazing Creature.

Íslensk náttúra er hér í sinni flottustu og fjölbreyttustu mynd þar sem íslenskt hráefni er fullnýtt í tísku, hönnun og handverki og matreiðslu.
Hönnun og handverk frá Arfleifð, skartgripir frá Sign og tónlist flutt af Amazing Creature.

Panta þarf á viðburðina og innifalið er fordrykkur, 6 rétta matseðill, tískusýning, tónlistarveisla, kynning á íslenskum hráefnum sem fullnýtt eru í mat og tísku.

6 tískusýningar - 6 rétta matseðill

Fordrykkur

Lax
Belti, höfuðskraut, armbönd, og skart
Sashimi & tartar ferskur og reyktur lax, soja sítrónudressing, mangó og dill

Þorskur
Fashion with FlavourToppar yfir boli og buxur, höfuðskraut og skart
Saltfisk brandade hvítlauks aioli og blóðbergsfroða

Hlýri og karfi
Pils, hálskragar, slár og skart
Grillaður hnakki og krókettur með smjörsteiktum aspas, vorlauk & sambuca humargljá

Lamb
Pils, belti og skart
Bláberjagrafinn lambahryggvöðvi klettasalat, léttreyktur sauðaostur og feit gæsalifu

Hreindýr
Pils, toppur, höfuðskraut, kragar og skart
Eldsteiktur innanlærisvöðvi með stökku spínati, steinseljurót og kóngasveppum

Eftirréttur
Ís frá Brunnhól
Galakjólar, höfuðskraut, töskur og skar
Djúpsteiktur Baileys-ís í sætu tempura með blönduðum ávöxtum og myntusýrópi

Kaffi og te


Flottar myndir af nokkrum Fashion with Flavor sýningum.


Um Fashion with Flavor

Hugmyndin af Fashion with Flavor er komin frá Ágústu Margréti hönnuði og handverkskonu Arfleifðar á Djúpavogi um fullnýtingu á hráefnunum sem hún notar í fatnað og fylgihluti, hráefnin eru svo nýtt í glæsilegann sex rétta matseðil.
Fashion with FlavourInn í tískusýninguna tvinnast svo skartgripir frá Sign í Hafnarfirði. Vörur Sign eru innblásnar frá íslenskri náttúru og tengingin við menningu og sögu er greinileg líkt og í vörum Arfleifðar.
Tónlistarmaðurinn Siggi Palli sem kemur fram undir nafninu Amazing Creature hefur sett saman tónlistardagskrá sem fellur fullkomlega að hverjum rétti. Því má segja að þetta sé margföld sýning og upplifun fyrir öll skynfærin.

Viðburðirnir eru samstarfsverkefni Arfleifðar, Sign, Amazing Creature, Grand Hótel Reykjavík og Fosshótelanna og hugsað sem árlegur viðburður fyrir hönnuði og listamenn.

ArfleifðArfleifð - Heritage from Iceland sérhæfir sig í hönnun á hágæða töskum, fylgihlutum og fatnaði eingöngu unnið úr íslenskum hráefnum laxa, karfa, þorsk og hlýra roði- lamba- og hreindýraleðri, hrosshárum, hreindýrshornum, ull og fl. Nánari upplýsingar hjá Ágústu í síma 8631475 eða á agusta@arfleifd.is

Hjá SIGN eru hannaðir og smíðaðir fallegir skartgripir sem gjarnan endurspegla það fallega og dulræna sem býr í íslenskri náttúru.

Amazing Creature er hljómsveit Sigurðar Páls Árnasonar sem er nýútskrifaður frá Berklee College of Music og starfar sem music producer og tónlistarmaður. Hann semur tónlistina sjálfur sem hann kallar Electronica/Dance charts. Tónlistin á Fashion with Flavor velur Siggi Palli sérstaklega út frá hverjum rétti- hverri sýningu.

Einstakt tækifæri til að sjá íslensk náttúru í sinni flottustu og fjölbreyttustu mynd

more

Fréttir og tilboð

Gistitilboð í maí

Við fögnum sumrinu með flottu gistitilboði. Tilvalið að njóta fyrstu daga sumarsins í höfuðborginn...

Meira