Food and Fun

Food and Fun á Grand hótel

Níunda matar- og menningarhátíðin Food and Fun fer fram dagana 24. - 28. febrúar. Íslenskir og erlendir matreiðslumeistarar matreiða  nýstárlega rétti úr íslensku hráefni.

Food and Fun á Brasserie Grand. Johan GustafssonÁ Grand hótel mætir til leiks þjóðþekktur matreiðslumeistari frá Svíþjóð Johan Gustafsson og mun hann framreiða girnilegar kræsingar af mikilli list.

Johan Gustafsson, eða ”Guzz” eins og hann er kallaður, hefur matreitt á  mörgum af þekktustu veitingastöðum í Gautaborg. Hann starfaði sem  yfirmatreiðslumeistari á Grand hotel í Marstand í 12 ár og hann hefur einnig séð um fjölmargar veislur fyrir Carl Gustav Svíakonung og aðrar þjóðþekkta einstaklinga frá Norðurlöndunum og Evrópu. Í dag rekur hann sinn eigin veitingastað Mama´s, í sjávarþorpinu Marstand rétt utan við Gautaborg.

Fjögurra rétta Food and fun matseðill á Brasserie Grand

Þorsk og humar carpaccio með rauðbeðu og humar vinaigrette,
               djúpsteiktum ostrum  og parmesan osti.
 Bakaðar ýsulundir með piparrót og “Västerbotten” osti,
               sellerýrótar ragout og kóngakrabba í súrsætri dillsósu.
 Lambahryggvöðvi með reyktum möndlu kartöflum, steinseljurót,
               hvítlauks-kremi og ítalskri pancetta pylsu.
 Vetrar eplaseyði með kaffi-ís og vanillukexi

Verð fyrir kvöldverðinn er 6.900 krónur.

Borðapantanir berist á netfangið eða í síma 514 8000

Food and fun gistitilboð

Food and fun gistitiboðGistu á Grand hótel og njóttu Food and fun í leiðinni. Food and fun tilboðið innifelur:

Happy Hour frá kl. 17-18
Grand gisting í betri herbergi í turni hótelsins
Fjögurra rétta Food and fun málsverður
Morgunverður innifalinn

Allt þetta á aðeins 23.800

Pantanir á Food and fun gistitilboðið berist á netfangið eða í síma 514 8000

more

Fréttir og tilboð

Sunnudags brunch í Setrinu

Það er notalegt að koma í sunnudags bröns í Setrinu á Grand Hótel Reykjavík og njóta þeirra rúmleg...

Meira