Johan 'Guzz' Gustafsson
Matreiðslumeistarinn Johan ”Guzz” Gustafsson á Brasserie Grand
Johan Gustafsson starfaði í 12 ár á Grand Hótel í Gautaborg áður en hann opnaði sinn eigin veitngastað Mama´s sem leggur aðaláherslu á matreiðslu á fiski og skelfiski. Veitingastaðurinn stendur við höfnina í sjávarþorpinu Marstand rétt utan við Gautaborg og er staðurinn talinn sá "heitasti" á svæðinu. Marstrand er vinsæll sumardvalarstaður og er þekktur fyrir einstaka heilsulind sem sænska konungsfjölskyldan sótti reglulega.
Johan Gustafsson fæddist árið 1967 og á sér farsæla sögu sem matreiðslumeistari í Gautaborg. Hann starfaði á mörgum af þekktustu veitingastöðum þar, eins og Brasserie Lipp, Restaurant Christina, Fiskkrogen og Långedrags Wärdshus áður en hann tók að sér að vera yfirmatreiðslumeistari á Grand hotel í Marstand.
Johann Gustafsson er meðlimur í sænsku matreiðslusamtökunum ”The Gothenburg Chefs” sem hafa það að markmiði að kynna matreiðslu á fiski og skelfiski sem heilsusamlega norræna matargerð. Hann er líka félagi í samtökum Evrópskra matargerðarmanna, Euro Toques. Hann hefur fjölmörgum sinnum séð um veislur fyrir Carl Gustav Svíakonung og aðrar þjóðþekkta einstaklinga frá Norðurlöndunum og Evrópu.
Okkur er það mikill heiður að taka á móti Johan ”Guzz” Gustafsson og það verður spennandi að fá að sjá og smakka það sem hann mun framreiða á Food and fun hátíðinni.
Fréttir og tilboð
Gistitilboð í maí
Við fögnum sumrinu með flottu gistitilboði. Tilvalið að njóta fyrstu daga sumarsins í höfuðborginn...
Meira







