Herbergin
Á Grand Hótel Reykjavík eru 314 herbergi með öllum nútíma þægindum, svo sem gervihnattasjónvarp, þráðlausu interneti, mini-bar, útvarp, pay-tv, sími, öryggishólf, te og kaffi sett. Baðherbergi fylgja öllum herbergjum, Bæð með baðkari og sturtu.
Í maí 2007 bættust við 205 executive herbergi í turni ásamt herbergjum með eldhúskrók, Junior svítum, og forsetasvítum. Öll herbergin eru með te og kaffisetti, minibar, straujárni og straubretti, öryggishólfi, síma og flatskjársjónvarpi.
Öll nýju herbergin eru með baðherbergi með sér baði og sturtu, flísalögð með hita í gólfi. Á junior svítunum og svítunum eru nuddbaðkör.
Eins og tveggja manna herbergin á Grand Hótel eru frá 21 m2 og upp í 26,5 m2 og eru búin öllum helstu þægindum. Sum herbergin eru með einstakt útsýni yfir fjallahringinn í kringum borgina og út á sjóinn. Flott og notaleg herbergi.
Fjölskylduherbergin henta einkar vel fyrir fjölskyldur með börn eða minni hópa sem vilja gista saman. Herbergin eru 36 m2 með tveggja manna rúmi og svefnsófa fyrir tvo. Herbergin eru einstaklega notaleg og henta vel fyrir fjölskyldur.
Executive hótelherbergin á Grand Hótel eru 23 - 30 m2 með Queen size rúmi. Herbergin eru með hágæða innréttingu og notalegu andrúmslofti til að mæta kröfum viðskiptafólks og þeirra sem vilja gera vel við sig. Útsýnið úr herbergjunum er stórkostlegt yfir borgina og fjallahringinn.
Stúdíó íbúðir eða hótelíbúðir (46 m2) eru með eldunaraðstöðu og sameiginlegu rými með setuaðstöðu. Svefnherbergi er aðskilið og notalegt. Íbúðirnar eru fallega innréttaðar og vel útbúnaðar til að mæta kröfum gestanna.
Junior svíturnar, minni svíturnar, eru alger lúxus og rúmgóðar (40 m2 ) og henta vel fyrir þá sem vilja gera vel við sig. Það er Queen size rúm og sófi í svítunni. Útsýnið er magnað yfir borgina og gaman að vera þar hvort sem er að sumri eða vetri.
Svíturnar eru 161 m2 að stærð og eru allar í turni hótelsins. Það eru tvö king size rúm og þægileg aðstaða. Hótelíbúðirnar henta ágætlega fyrir ýmis konar samkundur eins og minni brúðkaup, afmælisveislur ársfagnaði, brúðhjón og annað í þeim dúr.
Forsetasvíturnar eru háklássa svítur og þær gerast varla flottari. Mikil íburður í hönnun og glæsileika. Svíturnar eru rúmgóðar, allt upp í 120 m2. Setustofan er með sófa og stólum og svo er útsýnið af svölunum stórkostlegt yfir borgina og fjallgarðana allt í kring.Fréttir og tilboð
Gullaldardjass undir stjórn Hauks Gröndals
Það er ekki á hverjum degi sem landsmönnum gefst tækifæri til að hlýða á lifandi djass frá gullald...
Meira





