Fatlaðir
Hótelherbergi fyrir fatlaða
Á Grand hótel er mikið lagt upp úr því að gestum okkar líði vel og að dvölin verði þeim sem ánægjulegust. Grand hótel er þekkt fyrir að hafa gott aðgengi fyrir fatlaða og gesti í hjólastól. Reykjavíkurhótelin bjóða fötluðum og ferðalöngum í hjólastólum það besta í gistingu sem völ er á.
Grand Hótel Reykjavik leggur metnað í að hafa gott aðgengi fyrir fatlaða, einstaklinga í hjólastól og þá sem nota gönguhjálpartæki og hefur hótelið að bjóða 15 herbergi sem eru sérhönnuð með gott aðgengi fyrir fatlaða í huga. Mikið er lagt upp úr að gestum líði vel og eru herbergin hönnuð með það í huga. Sama er að segja um gestamóttökuna og snyrtiaðstöðuna þar sem haft er í huga að fatlaðir einstalkingar geti komist óhindrað leiða sinna.
Hótelherbergin á Grand hótel eru um 30 m2 og eru án þröskulda og annarra hindrana fyrir hjólastóla og önnur hjálpartæki. Hótelherbergin eru á öllum hæðum frá annarri og upp á þrettándu og er stór lyfta (um 4 m2) sem hægt er að taka á til að komast á hæðirnar.
Baðherbergið er 4,42 m2 og er dyragættin að baðherberginu 90 cm breið. Í þremur af baðherbergjunum þá opnast hurðin út en hún opnast inn í hinum tólf en á móti kemur að baðherbergið er mjög rúmgott og auðvelt að athafna sig í hjólastól. Það eru baðkör með handföng til stuðnings í þremur af herbergjunum en í hinum baðherbergjunum eru sturtur sem auðvelt er að renna inn hjólastól. Handklæðahengi eru ávallt innan seilingar. Það er gott rými á baðherberginu fyrir hjáolastólanotanda og hjólastóll kemst auðveldlega undir handlaugina. Frekari upplýsingar má sjá á þessum myndum.
Á myndunum hér að neðan má sjá grunnteikningu af hótelherbergi og baðherbergi með hjólastólaaðgengi.
| Grunnteikning af hótelherbergi |
Teikningar af baðherbergi |
Grand hótel Reykjavik fékk viðurkenningu frá Sjálfbörgu fyrir gott að gengi handa fötluðum.







