Forsetasvíturnar

Forsetasvíturnar á Grand Hótel

Fosetasvítan Ásgarður er glæsileg gistiaðstaða. Aðalrýmið eru 76m2, með borðstofuborði, notalegum  sófa og stólum. Svefnherbergið er 38 m2 með king size rúmi og samliggjandi baðherbergi með nuddbaðkari og sturtu. Á efstu hæð af svölunum er stórkostlegt útsýni yfir borgina.

Fosetasvítan Útgarður er svipuð og Ásgarður. Aðalrými svítunnar er 85m2 þar sem er fundaaðstaða með stóru langborði sem tekur 14 manns í sæti. Notaleg setuaðstaða er í setustofunni með sófa og stólum. Svítan er með tveimur svefnherbergjum sem má tengja saman.

Aðbúnaður í forsetasvítunum:
Baðkar
Sturta
Sjónvarp
Útvarp
Sími
Þráðlaust internet
Minibar
Kaffisett
Buxnapressa
Öryggishólf