Jólahlaðborð - Matseðill

Jólahlaðborð Grand Hótel Reykjavík 2011

Jólahlaðborð 2011 með Helga Björns og hljómsveitHlaðborðið er að vanda vel útilátið með jólalegum forréttum, köldum og heitum aðalréttum með sósum og meðlæti og girnilegt eftirréttahlaðborð að hætti matreiðslumeistaranna.
Jólahlaðborðið er í hádeginu á föstudögum og einnig á kvöldin á fimmtudögum, föstudögum, laugardögum og sunnudögum. Hópar geta pantað jólahlaðborðið aðra daga.

Jólahlaðborð á Grand Hótel Reykjavík er með Helga Björns og mun hann flytja íslenskar og erlendar dægurlagaperlur í bland við jólalög ásamt Kjartani Valdimarssyni á píanó og Guðmundi Óskari á bassa auk annarra tónlistaratriða.

Matseðill á Jólahlaðborði  2011

Forréttir
Sjávarréttasalat, engifer-chili kjúklingur, villibráðapaté, sjávarréttapaté, reyktur og grafinn lax, villibráðasalat, reykt nautatunga, jólasíld, tómatsíld, marineruð síld,  tómatsalat með fetaosti

Kaldir aðalréttir
Hangilæri, grísa hamborgarhryggur, parma skinka

Heitir aðalréttir
Kryddlegið lambalæri, purusteik að dönskum hætti, hunangsgljáð fyllt kalkúnabringa, hreindýrabollur í berja og ostasósu
Rauðvínssósa, koníaks piparsósa, uppstúf og kartöflur, sykurbrúnaðar kartöflur, ristað grænmeti

Grænmetisréttir
Karry/chili kryddað grænmetis & kartöfluréttur, hnetu/baunasteik, grænmetislasagne, hrísgrjónasalat

Sósur og meðlæti                  
Hvítlaukssósa, graflaxsósa, chantillysósa, sinnepssósa, cumberlandsósa, bláberja”vinaigrette”, piparrótarsósa, eplasalat með valhnetum, kartöflusalat með karrý, rauðkál, rauðbeður, grænar baunir, ávaxtasalat, asíur, blandað salat og grænmeti
Laufabrauð, flatbrauð, rúgbrauð og nýbökuð blönduð brauð

Eftirréttahlaðborð
Úrval eftirrétta að hætti Grand Hótels



Jólahlaðborð Grand Hótel Reykjavík 2011 - Matseðill (PDF skjal 715 KB)

Verð fyrir Jólahlaðborðið á Grand Hótel Reykjavík

Verð í hádeginu; fullorðnir  5.400 kr, 6-12 ára 2.700 kr, 0-5 ára frítt.
Verð á kvöldin; fullorðnir  7.900 kr, 6-12 ára 5.500 kr, 0-5 ára frítt.
Verð með skemmtun; fullorðnir 8.900 kr, 6-12 ára 5.500 kr, 0-5 ára frítt.
Verð á fimmtudags- og sunnudagskvöldum; fullorðnir  7.900 kr og frítt er fyrir 12 ára og yngri.

Jólahlaðborð Grand Hótel Reykjavík 2011 - Auglýsing (PDF skjal 715 KB)

Söng- og skemmtiatriði á Jólahlaðborði Grand hótel Reykjavík

Pantanir í síma 514 8000 eða á netfang

more

Fréttir og tilboð

Sunnudags brunch í Setrinu

Það er notalegt að koma í sunnudags bröns í Setrinu á Grand Hótel Reykjavík og njóta þeirra rúmleg...

Meira