Jólahlaðborð 2010

Jólahlaðborð á Grand hótel 2010

Jólahlaðborðið á Grand Hótel byrjar föstudaginn 19. nóvember.

Hið árlega jólahlaðborð á Grand hótel verður hátíðlegt í ár og margar skemmtilegar uppákomur í boði. Hlaðborðið er að vanda vel útilátið með jólalegum forréttum, köldum og heitum aðalréttum með sósum og meðlæti og girnilegt eftirréttahlaðborð að hætti Grand hótels. Hér má sjá matseðil jólahlaðborðsins.

Jólahlaðborð Grand hótel Reykjavík 2010Jólahlaðborðið er í hádeginu á föstudögum og einnig á kvöldin á föstudögum, laugardögum og sunnudögum. Hópar geta pantað jólahlaðborðið aðra daga.
Tónlistaratriðin á jólahlaðborðinu í ár eru ekki af verri endanum og tilvalið að koma sér í jólastemninguna á Grandinu.

Eyjólfur Kristjánsson og Jón Ólafsson munu flytja íslenskar og erlendar dægurlagaperlur í bland við jólalög á föstudags- og laugardagskvöldum.  Jólabjöllurnar munu heimsækja okkur, ganga um sali og flytja íslensk þjóðleg jólalög og einnig mun hinn fjölhæfi tónlistarmaður Reynir Sigurðsson töfra fram jólatóna á píanó og vibrafón og hin óborganlega hljómsveit Hafrót mun spila fyrir dansi.


Dagskrá Jólahlaðborðsins

Fordrykkur      
19:00 – 19:45  Reynir Sigurðsson spilar ljúfa jólatóna á Marimbu (Víbrafón).

Brasseri /Setur                 Verð 7500,-
20:00-21:00  Reynir Sigurðsson spilar ljúfa tóna á píanó.
21:00-21:20  Jólabjöllurnar syngja.
21:30-22:30  Reynir mætir aftur og spilar hress jóla- og dægurlög  á harmónikku.
Eftir matinn geta gestir svo fært sig yfir í Gullteig og tekið snúning undir tónum Hafrótar.

Gullteigur                          Verð  8500,-
19:00-19:50  Reynir Sigurðsson spilar ljúfa tóna á píanó.
20:30- 21:00  Jólabjöllurnar ganga um salinn og syngja jólalög.
21:30-22:30  Eyjólfur Kristjánsson og Jón Ólafsson syngja vinsæl dægurlög og jólalög.
23:00-01:00  Hljómsveitin Hafrót leikur fyrir dansi.
Jólahlaðborð á Grand Hótel
Komið og njótið glæsilegs jólahlaðborðs Grand hótels. Ógleymanleg stund í góðra vina hópi.


Verð í hádeginu; fullorðnir  5.100 kr, 6-12 ára 2.600 kr, 0-5 ára frítt
Verð á kvöldin; fullorðnir  7.500 kr, 6-12 ára 5.200 kr, 0-5 ára frítt
Verð með skemmtun; fullorðnir 8.500 kr, 6-12 ára 5.900 kr, 0-5 ára frítt

Athugið að frítt er fyrir börn yngri en 12 ára á sunnudögum.

Pantanir í síma 514 8000 eða á netfang


Einstakt jólatilboð fyrir turtildúfur

Bætið við gistingu og morgunverði fyrir aðeins 11.900,-  fyrir gistingu í tveggja manna herbergi.
Pantanir í síma 514 8000 eða á netfang

more

Fréttir og tilboð

Sunnudags brunch í Setrinu

Það er notalegt að koma í sunnudags bröns í Setrinu á Grand Hótel Reykjavík og njóta þeirra rúmleg...

Meira