Jólahlaðborð 2011

Jólahlaðborð með Helga Björns á Grand Hótel Reykjavík 2011

Jólahlaðborðið á Grandinu hefst föstudaginn 18. nóvember.

Hið árlega jólahlaðborð á Grand Hótel Reykjavík verður hátíðlegt í ár og margar skemmtilegar uppákomur í boði. Hlaðborðið er að vanda vel útilátið með jólalegum forréttum, köldum og heitum aðalréttum með sósum og meðlæti og girnilegt eftirréttahlaðborð að hætti matreiðslumeistaranna. Hér má sjá matseðil jólahlaðborðsins.

Jólahlaðborðið er í hádeginu á föstudögum og einnig á kvöldin á föstudögum, laugardögum og sunnudögum. Hópar geta pantað jólahlaðborðið aðra daga.
Tónlistaratriðin á jólahlaðborðinu í ár eru ekki af verri endanum og tilvalið að koma sér í jólastemninguna á Grandinu.


Jólahlaðborð á Grand Hótel Reykjavík með Helga BjörnsHelgi Björnsson mun flytja íslenskar og erlendar dægurlagaperlur í bland við jólalög ásamt Kjartani Valdimarssyni á píanó og Guðmundi Óskari á bassa, á föstudags- og laugardagskvöldum.  Jólabjöllurnar munu heimsækja okkur, ganga um sali og flytja íslensk þjóðleg jólalög og einnig mun hinn fjölhæfi tónlistarmaður Reynir Sigurðsson töfra fram jólatóna á píanó og vibrafón og hin óborganlega hljómsveit Hafrót mun spila fyrir dansi.

Jólahlaðborð Grand Hótel Reykjavík 2011 - Auglýsing (PDF skjal 715 KB)
Jólahlaðborð Grand Hótel Reykjavík 2011 - Matseðill (PDF skjal 715 KB)


Dagskrá Jólahlaðborðsins

Fordrykkur      
19:00 – 19:45  Reynir Sigurðsson spilar ljúfa jólatóna á Marimbu (Víbrafón).

Brasseri / Setur
20:00-21:00  Reynir Sigurðsson spilar ljúfa tóna á píanó.
21:00-21:20  Jólabjöllurnar syngja.
21:30-22:30  Reynir mætir aftur og spilar hress jóla- og dægurlög  á harmónikku.
Eftir matinn geta gestir svo fært sig yfir í Gullteig og tekið snúning undir tónum Hafrótar.

Gullteigur
19:00-19:50  Reynir Sigurðsson spilar ljúfa tóna á píanó.
20:30- 21:00  Jólabjöllurnar ganga um salinn og syngja jólalög.
21:30-22:30  Helgi Björns og hljómsveit syngja vinsæl dægurlög og jólalög.
23:00-01:00  Hljómsveitin Hafrót leikur fyrir dansi.

Komið og njótið glæsilegs jólahlaðborðs Grand hótels. Ógleymanleg stund í góðra vina hópi.

I. Jólahlaðborð

á föstudags- og laugardagskvöldum með Helga Björns ásamt Kjartani Valdimarssyni á píanó og Guðmundi Óskari á bassa, á föstudags- og laugardagskvöldum.
Jólabjöllurnar, Reynir Sig. og hljómsveitinni Hafrót.
Fullorðnir 8.900 kr.
Börn 6-12 ára 5.500 kr
., 0-5 ára frítt
Pantanir í síma 514 8000 eða á netfang


II. Jólahlaðborð

án sýningar á föstudags- og laugardagskvöldum með
Jólabjöllunum, Reynir Sig. og hljómsveitinni Hafrót.
Fullorðnir 7.900 kr.
Börn 6-12 ára 5.500 kr.
, 0-5 ára frítt.
Pantanir í síma 514 8000 eða á netfang

III. Jólahlaðborð

í hádeginu á föstudögum
Fullorðnir 5.400 kr.
Börn 6-12 ára 2.700 kr.
, 0-5 ára frítt.
Pantanir í síma 514 8000 eða á netfang

IV. Jólahlaðborð

Jólahlaðborð á fimmtudags- og sunnudagskvöldum
Fullorðnir 7.900 kr.
Frítt fyrir 12 ára og yngri.
Pantanir í síma 514 8000 eða á netfang

Viltu bæta við gistingu?

Jólahlaðborð og gisting í tveggja manna herbergi með morgunverði.
Aðeins 14.850 kr. á mann

Frekari upplýsingar um gistingu
Pantanir í síma 514 8000 eða á netfang


Dagsetningar á jólahlaðborðinu

Jólahlaðborð með Helga Björnssyni  á Grand H'otel Reykjavík

Jólahlaðborðið er föstudaga, laugardaga og sunnudaga á eftirfarandi dögum:
18. - 20. nóv.
25. - 27. nóv.
2. - 4. des.
9. - 11. des.
16. - 18. des.

Jólahlaðborðið er í hádeginu á föstudögum. Fyrirtæki og hópar geta einnig pantað jólahlaðborðið aðra daga. Vinsamlegast hafið samband og við finnum hentuga dagsetningu og sal fyrir þig.

more

Fréttir og tilboð

Gistitilboð í maí

Við fögnum sumrinu með flottu gistitilboði. Tilvalið að njóta fyrstu daga sumarsins í höfuðborginn...

Meira