Jólahlaðborð og gisting
Tilboð í gistingu og Jólahlaðborð á Grand Hótel Reykjavík 2011
Hið árlega jólahlaðborð á Grand Hótel Reykjavík hefst 18. nóvember. Hlaðborðið er að vanda vel útilátið með jólalegum forréttum, köldum og heitum aðalréttum með sósum og meðlæti og girnilegt eftirréttahlaðborð að hætti Grand hótels. Hér má sjá matseðil jólahlaðborðsins.
Jólahlaðborðið er í hádeginu á föstudögum og einnig á kvöldin á fimmtudögum, föstudögum, laugardögum og sunnudögum. Hópar geta pantað jólahlaðborðið aðra daga.
Helgi Björnsson mun flytja íslenskar og erlendar dægurlagaperlur í bland við jólalög ásamt Kjartani Valdimarssyni á píanó og Guðmundi Óskari á bassa, á föstudags- og laugardagskvöldum. Jólabjöllurnar munu heimsækja okkur, ganga um sali og flytja íslensk þjóðleg jólalög og einnig mun hinn fjölhæfi tónlistarmaður Reynir Sigurðsson töfra fram jólatóna á píanó og vibrafón og hin óborganlega hljómsveit Hafrót mun spila fyrir dansi.
Jólahlaðborð Grand Hótel Reykjavík 2011 - Auglýsing (PDF skjal 715 KB)
Jólahlaðborð Grand Hótel Reykjavík 2011 - Matseðill (PDF skjal 715 KB)
Einstakt gistitilboð með jólahlaðborðinu
Ef þú vilt njóta jólahlaðborðsins á Grand Hótel Reykjavík og einnig gista að lokinni skemmtun þá bjóðum við þér gistitilboð á góðu verði. Við bjóðum þér gistingu í tveggja manna herbergi á hótelinu og er morgunverðarhlaðborð innifalið.
Tilboð í jólahlaðborð og gistingu í tveggja manna herbergi með morgunverði.
Aðeins 14.850 kr. á mann
Pantanir í síma 514 8000 eða á netfang
Fréttir og tilboð
Gistitilboð í maí
Við fögnum sumrinu með flottu gistitilboði. Tilvalið að njóta fyrstu daga sumarsins í höfuðborginn...
Meira







