Nova Scotia dagar

Humarveisla á Nova Scotia dögum á Grand hótel Reykjavík. Ferskur humar beint frá Nova Scotia.

Sérinnfluttur lifandi kanadískur humar beint frá Nova Scotia. Humarveisla ársins á Grand hótel Reykjavík

Ferskur humar frá Nova Scotia. HumarveislaFerskur, fyrsta flokks lifandi humar frá Nova Scotia verður matreiddur beint á diskinn dagana 11. -13. júní á Grand Hótel Reykjavík. Þetta er einstakt tækifæri til að bragða ekta kanadískan humar.
Humarinn frá Nova Scotia er oft nefndur Konungur sjávarfangs (King of Seafood ) og eru það orð að sönnu. Æðra sjávarfang er vart hægt að hugsa sér.

Nova Scotia (Nýja Skotland eða Nýfundnaland ) er stærsti humarútflytjandi í heimi og sælkerar verða ekki sviknir af matnum sem kemur þaðan. Humarinn ( Atlantic lobster ) frá Nova Scotia er frægur um allan heim og það er ekki að ástæðulausu. Það eru gjöful humarmið úti fyrir ströndum austur Kanada. Humarinn er sérinnfluttur lifandi til Íslands beint frá Kanada í tilefni af Nova Scotia dögunum.  Þetta verður því einstakt tækifæri til að borða ferskan humar sem gestir geta valið sjálfir.

Það verður ekta kanadískur matur á boðstólum og auk  humarsins verða flutt sérstaklega inn til landsins hörpuskel, túnfiskur og bláber.  Bláberin frá Nova Scotia eru þekkt fyrir gæði og ferskleika og það er mikill fjölbreytileiki í villtum berjum í Nova scotia. Það verða nokkrar tegundir af berjum frá Kanada á boðstólnum og verður spennandi að smakka.
Nova Scotia er rúmlega helmingur Íslands að stærð (55.000 km2) og þar búa um 900.000 manns.  Fjölmörg íslensk fyrirtæki hafa haslað sér völl í Nova Scotia.

Í tilefni af Nova Scotia dögunum koma til landsins tveir matreiðslumenn, Martin Ruiz Salvador og Scott Vail, báðir vel þekktir í heimalandi sínu.


Matreiðslumeistarar frá Nova Scotia

Martin Ruiz Salvador matreiðslumeistari eyddi sínum bernskuárum í Blandford, sjávarbæ á austurhluta Nova Scotia, þar sem hann kynntist fyrst fjölbreytileika sjávarfangsins. Hann rekur franskan veitingastað, Fleur de Sel, ásamt eiginkonu sinni Sylvie í borginni Lunen burg í Nova Scotia. Þau sérhæfa sig í sjávarréttum  og hefur veitingastaðurinn þeirra unnið til margra viðurkenninga; Fleur de Sel hefur verið kosinn einn af bestu veitingastöðum í Kanada af EnRoute tímaritinu, fengið viðurkenningu á borð við CAA/AAA Four Dimond, tvær stjörnur í "Where to eat in Canada", tilnefndur Veitingastaður ársins  2008 af "Taste of Nova Scotia" og einnig af Chronicle Herald. Og Martin lenti í fjórða sæti í "The Gold Medal Plates Competion" í Toronto á árinu 2008.

Matreiðslumeistarinn Scott Vail er einn af stjórnendum Halliburton Boutique hótelsins í Halifax og fékk hann menntun sína á betri hótelum og veitingastöðum í Suður Ontario undir stjórn evrópskra matreiðslumeistara. Scott Vail leggur mikinn metnað og ástríðu í matargerðina og þykir hann fara óvenjulegar leið til þess að fá gesti til sín. Á veitingastað Halliburton hótelsins er maturinn listilega borinn fram  og leggur Scott mikinn metnað í að fá hráefni frá bændum og sjómönnum frá Nova Scotia svæðinu. Veitingastaðurinn er kallaður "best geymda leyndarmálið" og hefur vakið mikla athygli og er vinsæll á meðal ferðamanna og íbúanna.

Nova Scotia dagarnir eru unnir í samvinnu við Kanadíska sendiráðið


Matseðilinn á Nova Scotia dögunum

Forréttir / Appetizers


Horseradish-beet cured salmon, celeriac roesti chive blossom crème fraiche
Rauðrófu-piparrótar grafinn lax, seljurótar-rösti graslaukur, sýrður rjómi
Kr. 1.950.-

Carpaccio of blue fin tuna, sun dried tomato tapenade, pickled spring vegetables
Túnfisk carpaccio, sólþurrkað tómata-tapenade, sætsúrt grænmeti
Kr. 2.450.-

Potage of Salt Cod, salt cod fritter, chive oil, fleur de sel
Saltfiskssúpa, saltfisksbollur, graslauksolía, fleur de sel
Kr. 2.150.-


Aðalréttir / Main courses

Lamb two ways; roast double chop and spice braised shoulder, masa polenta, tamarind and red chilies
Lambatvenna; steikt kótiletta, hægeldaður frampartur, polenta, tamarind-chilisósa
Kr. 5.100.-

Crisp skin Icelandic Arctic Char, wilted greens braised leeks citrus pistachio butter
Pönnusteikt bleikja með stökkri húð, léttsteikt spínat og blaðlaukur, sítrus-pistasíu smjör
Kr. 4.490.-

Butter Poached Atlantic Lobster, smoked paprika potato salad, asparagus, saffron,
tomato and basil aiolis, lobster roe vinaigrette
Atlantic risahumar eldaður í góðu smjörsoði, reykt papriku-kartöflusalat, aspas, saffran,
tómat og basil sósur, humar hrogna vinaigrette
Kr. 5.700.-

Nova Scotia Sea Scallops, bacon, fresh pea and mint risotto, pea shoots
Nova Scotia risahörpuskel, beikon, bauna-mintu risotto, smákryddjurtir
Kr. 5.200.-


Eftirréttir / Desserts

Wild blueberry pecan buckle, cinnamon maple whiskey ice cream
Villt bláberja-pecankaka, kanil maple whiskey ís
Kr. 1.690.-

Flourless chocolate cake with local berries
Súkkulaðikaka með sabayonsósu og ferskum berjum
Kr. 1.690.-

Rhubarb and Lemon Tart, buttermilk ice cream
Rabbabara og sítrónukaka, súrmjólkurís
Kr. 1.690.-

 


Set Menu á la Canadian chefs Martin Ruiz Salvador and Scott Vail

Þriggja rétta seðill að hætti kanadísku matreiðslumeistaranna
Martin Ruiz Salvador og Scott Vail


********************


Horseradish-beet cured salmon, celeriac roesti chive blossom crème fraiche and
Carpaccio of blue fin tuna, sun dried tomato tapenade, pickled spring vegetables

Rauðrófu-piparrótar grafinn lax, seljurótar-rösti graslaukur, sýrður rjómi og
Túnfisk carpaccio, sólþurrkað tómata-tapenade, sætsúrt grænmeti


********************


Butter Poached Atlantic Lobster, smoked paprika potato salad, asparagus, saffron,
tomato and basil aiolis, lobster roe vinaigrette and
Nova Scotia Sea Scallops, bacon, fresh pea and mint risotto, pea shoots

Atlantic risahumar eldaður í góðu smjörsoði, reykt papriku-kartöflusalat, aspas, saffran,
tómat og basil sósur, humar hrogna vinaigrette og
Nova Scotia risahörpuskel, beikon, bauna-mintu risotto, smákryddjurtir


*********************


Wild blueberry pecan buckle, cinnamon maple whiskey ice cream
Villt bláberja-pecankaka, kanil maple whiskey ís


Kr. 7.890.-

Pantaðu núna á netfangið veitingar@grand.is eða hringdu í síma 514 8000

Skráðu þig í netklúbbinn okkar

more

Fréttir og tilboð

Sunnudags brunch í Setrinu

Það er notalegt að koma í sunnudags bröns í Setrinu á Grand Hótel Reykjavík og njóta þeirra rúmleg...

Meira