Ráðstefnur og fundir

Ráðstefnu- og fundaaðstaða á Grand Hótel Reykjavík

Á Grand Hótel Reykjavík er fyrsta flokks ráðstefnu- og veisluaðstaða. Um er að ræða 13 sali sem taka á bilinu 6 - 470 manns. Stærsti salurinn er Gullteigur og er hann jafnframt einn sá tæknivæddasti á landinu. Gullteigur getur rúmað allt að 470 manns í sæti auk þess sem 170 fermetra forrými salarins býður upp á marga möguleika s.s sýningarsvæði.

Þegar hótelið var stækkað bættust við þrír fundarsalir, tveir móttökusalir og tveir litlir fundarsalir á 14. hæð. Auk þess er í anddyri nýja hlutans skemmtileg aðstaða til að halda stórar og glæsilegar móttökur og veislur.


Ráðstefnuaðstaða og þjónusta

Ráðstefnudeildin á Grand Hótel Reykjavík er ávallt reiðubúin að aðstoða þig við skipulagningu og undirbúning ráðstefnu eða veisluhalda. Hvort heldur um er að ræða litla fundi,  stórar ráðstefnur, fermingarveislur, brúðkaup, árshátíðir, erfidrykkjur eða önnur einkasamkvæmi. Starfsfólkið í ráðstefnudeildinni leggur metnað sinn í að tilefnið heppnist sem best.

Hér eru upplýsingar um ráðstefnu- og fundaaðstöðuna á Grand Hótel Reykjavík

more

Fréttir og tilboð

Sunnudags brunch í Setrinu

Það er notalegt að koma í sunnudags bröns í Setrinu á Grand Hótel Reykjavík og njóta þeirra rúmleg...

Meira