Fundaraðstaða með fjarfundabúnaði
Fundaraðstaða með fjarfundabúnaði á Grand Hótel Reykjavík
Á Grand Hótel Reykjavík er nú hægt að leigja fundaraðstöðu með fjarfundabúnaði.
Fjarfundabúnaðurinn gerir viðskiptavinum kleift að koma á gagnvirkum myndfundum í rauntíma yfir IP nettenginu. Fundarmenn sjá hvorn annan og geta talað saman eins og þeir væru staddir á sama stað.
Á fjarfundi er hægt að nýta sér svokallaða brúartækni þar sem hægt er að tengja saman fjölmarga staði inn á einn og sama fundinn.
Nokkur fundarherbergi á hótelinu eru til aflögu fyrir fjarfundi allt eftir óskum fjarfundagesta. Staðlaður fjarfundabúnaður er IP tenging, 42" sjónvarpsskjár og önnur nauðsynleg tæki til að halda fjarfund.
Við erum í samstarfi við Eyenetwork, Whygo og önnur alþjóðleg fyrirtæki sem sérhæfa sig í fjar- og myndfundakerfum og þjónustu því tengdu. Við getum tengst þessum aðilum út um allan heim.
Fjarfundabúnaður
Polycom QDX 6000 fjarfundabúnaðurinn gerir skipuleggjendum kleyft að halda fjarfundi án þess að hafa einhverja tæknilega sérþekkingu. Þegar fjarfundagestir mæta í salinn er fjarfundabúnaðurinn klár til notkunar og tæknimaður getur aðstoðað við að tengja ef þörf er á því.
Tæknimaður frá hótelinu er ávallt til staðar til að aðstoða ef eitthvað kemur upp á.
Polycom QDX 6000 SD fjarfundakerfið innifelur m.a. Eagle Eye SD myndavél, 2 QDX hljóðnema, fjarstýringu og fleira. Frekari upplýsingar um fjarfundabúnaðinn má nálgast hjá tæknistjóra.
Verð fyrir notkun á fjarfundabúnaði
Möguleiki er á að leigja búnaðinn í hálfan dag og heilan dag.
Hálfur dagur 60.000 krónur
Heill dagur 80.000 krónur
Bókun á fjarfundaþjónustu
Til þess að bóka fjarfundaþjónustu má senda póst eða hringja í ráðstefnudeildina 514-8020
Fréttir og tilboð
Gistitilboð í maí
Við fögnum sumrinu með flottu gistitilboði. Tilvalið að njóta fyrstu daga sumarsins í höfuðborginn...
Meira







