Veisluþjónusta

Veisluþjónusta við hin ýmsu tilefni

Matur og þjónusta er okkar aðalsmerki og við höfum fjölbreytilegt úrval hópamatseðla sem hentar við hin ýmsu tiefni. Til margra ára höfum við á Grand hótel séð um skipulagningu á ráðstefnum og fundum fyrir stór og smá fyrirtæki og stofnanir. Aðstoðað við skipulagningu á veislum af ýmsum toga, eins og afmælisveislur, brúðkaupsveislur, fermingarveislur, útskriftarveislur og ættarmótum sem og virðulegri viðburði eins og erfidrykkju.  Haft umsjón með skipulagningu á hópeflisfundum, sölufundum og fyrirtækjafundum eins og aðalfundir fyrir stór og smá fyrirtæki sem og vörusýningar ýmis konar.
Þjónustufulltrúar okkar í ráðstefnudeildinni geta gefið þér ýtarlegar upplýsingar um stærðir á ráðstefnu- og fundarsölum, hvernig best er að skipuleggja salina, hvaða veitingar henta tilefninu svo og hvaða gistimöguleikar eru í boði fyrir gestina.
Hér er úrvalið af því sem við erum með í boði við hin ýmsu tilefni.

Árshátíðin

Á Grand Hótel Reykjavík er kjörinn staður til að halda árshátíðina. Við bjóðum fyrirtækjum, stórum sem smáum, stofnunum og félagasamtökum,  viðráðanleg árshátíðartilboð en erum samt "Grand á því".
Meira


Brúðkaupið
Á Grand Hótel Reykjavík er fyrsta flokks aðstaða til að halda brúðkaupsveisluna. Á hótelinu eru m.a. fjórir veislusalir sem taka á bilinu 30-300 gesti í borðhald. Hægt er að stilla upp í sölunum allt eftir ykkar óskum.
Meira

Erfidrykkjan
Erfidrykkja hefur tilfinnanlegt gildi fyrir ættingja og aðstandendur og er hluti af þesusm félagslega þætti að minnast hins látna. Það er mikilvægt fyrir aðstandendur að hittast í notalegu umhverfi eftir útförina, nærast á góðum veitingum með ástvinum og ættingjum og rabba saman í góðu tómu eftir átakanlega stund.
Meira

Fermingarveislan
Fermingin er stór áfangi í lífi unga fólksins og fyrir þeim skiptir fermingarveislan ekki síður miklu máli. Á Grand Hótel Reykjavík getum við boðið þér fermingarveisluna í einum pakka; salinn, matinn, undirbúninginn og fráganginn á eftir. Auðveldarar getur það ekki verið. Þið eruð velkomin að koma og skoða salina sem eru í boði og einnig að setjast yfir kaffibolla til að ræða skipulagninguna og að skoða saman matseðlana.
Meira

more

Fréttir og tilboð

Gistitilboð í maí

Við fögnum sumrinu með flottu gistitilboði. Tilvalið að njóta fyrstu daga sumarsins í höfuðborginn...

Meira