Brúðkaupið
Brúðkaupsveislur á Grand Hótel Reykjavík
Á Grand Hótel Reykjavík er fyrsta flokks aðstaða til veisluhalda og höfum við sérhæft okkur í brúðkaupsveislum. Vanda þarf til skipulagningar á brúðkaupi og val á veislu og staðsetningu er einn af því sem þarf að ákveða.
Brúðhjónin
Brúðhjónin njóta alls hins besta sem Grand Hótel Reykjavík hefur upp á að bjóða í gistingu, mat og drykk.
Í boði eru þrír glæsilegir brúðkaupspakkar sem brúðhjónin geta notið eftir brúðkaupsveisluna. Upplifunin er ógleymanleg í rómantískri brúðarsvítu á efstu hæðinni í turni hótelsins ... og útsýnið er stórkostlegt yfir borgina og sundin blá. Ímyndaðu þér ískalt freyðivín, rósir, konfekt og ávaxtakörfu, óvænta gjöf frá hótelinu, himneskt nudd og morgunmatur í rúmið. Svo getið þið valið hvort þið viljið snæða fjögurra rétta kvöldverð með víni við arineld.
Við getum einnig sérhannað fyrir ykkur drauma brúðkaupspakkann.
Ummæli frá brúðhjónum sem hafa notið þjónustunnar á Grand Hótel Reykjavík
Brúðkaupspakkar (PDF skjöl) sem hægt er að prenta út:
Sætir hveitibrauðsdagar á Grand hótel Reykjavík (PDF skjal 328 KB)
Rómantíski brúðkaupspakkinn á Grand hótel Reykjavík (PDF skjal 328 KB)
Drauma brúðkaupspakkinn á Grand hótel Reykjavík (PDF skjal 304 KB)
Þessir pakkar henta einnig fyrir brúðkaupsafmæli. En einnig er í boði sérstakur pakki fyrir brúðkaupsafmæli.
Frekari upplýsingar
Tuna Dís Metya, sölufulltrúi, beinn sími: 514-8020, netfang
Hlín Íris Arnþórsdóttir, sölufulltrúi, beinn sími: 514-8034, netfang
Veislusalir fyrir brúðkaup
Hvort sem þið eruð að skipuleggja minni brúðkaup eða stóra veislu getum við aðstoðað ykkur við skipulagningu á veislusalnum, veisluföngunum og séð um gistinguna fyrir gestina. Á hótelinu eru veislusalir sem rúma 30-300 gesti í borðhaldi. Hér eru frekari upplýsingar um stærð salanna og gerð þeirra.
Við erum með færanlegt dansgólf og svið fyrir minni salina, og getum aðstoðað við að útvega tónlist. Á hótelinu er tæknilega fullkominn búnaður fyrir allar mögulegar uppákomur. Hljóðkerfi og annar búnaður til hljóðs er af bestu gerð, sem og myndsýningar- og tölvubúnaður.
Kynningarblöðungur um veislusali (PDF skjal) sem hægt er að prenta út:
Brúðkaupsveislur á Grand hótel (PDF skjal 404 KB)
Frekari upplýsingar;
Tuna Dís Metya, sölufulltrúi, beinn sími: 514-8020, netfang
Hlín Íris Arnþórsdóttir, sölufulltrúi, beinn sími: 514-8034, netfang
Maturinn í brúðkaupinu
Matreiðslumennirnir eru snillingar í eldhúsinu og matreiðsla er þeirra ástríða. Þeir laða fram það besta úr eldhúsinu og geta búið til drauma matarveislu fyrir brúðkaupið ykkar.
Í boði er m.a framandi veitingar eins og; Sveitaveisla, steikarveisla, miðjarðarhafsveisla, sælkeraveisla og asíuveisla. Einnig eru meiri hefðbundnari veitingapakkar fyrir brúðkaup sem við höfum verið með í mörg ár og eru vinsælir hjá okkur; kvöldverðarhlaðborð, létt kvöldverðarhlaðborð, pinnahlaðborð, kaffihlaðborð og úrval á þriggja rétta matseðli.
Hér eru upplýsingar um veitingar fyrir brúðkaup.
Frekari upplýsinga;
Tuna Dís Metya, sölufulltrúi, beinn sími: 514-8020, netfang
Hlín Íris Arnþórsdóttir, sölufulltrúi, beinn sími: 514-8034, netfang
Gisting fyrir brúðkaupsgesti
Að sjálfsögðu er í boði gisting á hótelinu fyrir veislugesti. Við bjóðum brúðhjónum sem halda veisluna sína hjá okkur, fyrir 50 manns eða fleiri, upp á brúðarsvítu í boði hótelsins og svo erum við með sér gistiverð fyrir brúðkaupsgestina. Herbergin á Grand hótel Reykjavík eru stór og vel búin, öll með baðkeri og sturtu, sjónvarpi, minibar, hárþurrku, straujárni og bretti, kaffivél og öryggishólfi.
Við erum reiðubúin til þess að aðstoða við skipulagningu og undirbúning svo brúðkaupsveislan heppnist sem best.
Frekari upplýsingar gefa;
Tuna Dís Metya, sölufulltrúi, beinn sími: 514-8020, netfang
Hlín Íris Arnþórsdóttir, sölufulltrúi, beinn sími: 514-8034, netfang
Fréttir og tilboð
Sunnudags brunch í Setrinu
Það er notalegt að koma í sunnudags bröns í Setrinu á Grand Hótel Reykjavík og njóta þeirra rúmleg...
Meira






