Brúðkaupsafmæli

Brúðkaupsafmæli - Rómantíkin ávallt blómstri

Er brúðkaupsafmæli á næstunni og langar ykkur til að halda upp á daginn? Við á Grand Hótel Reykjavík tökum fagnandi á móti hjónum sem eiga brúðkaupsafmæli. Það er ávallt tilefni til að fagna hjúskaparafmæli og rétt að gera sér glaðan dag á slíkum tímamótum.


Brúðkaupsafmælistilboð á Grand Hótel Reykjavík innifelur.

 Brúðkaupsafmæli á Grand Hótel Reykjavík - Gisting fyrir hjónin í executive glæsiherbergi í turni hótelsins. Herbergin eru 23 - 30 m2 með Queen size rúmi og úr turni hótelsins er stórkostlegt útsýni yfir borgina og út á sundin blá. Mikill metnaður er lagður í þægindi og glæsileika á herbergjunum til þess eins að gestum okkar líði vel.
 - Óvæntur sérútbúinn afmælisglaðningur bíður hjónanna uppi á herbergi.
  - Í boði er fjögurra rétta glæsimáltíð að hætti matreiðslumeistarns ásamt léttvínsflösku.
  - Morgunverðarhlaðborð er einnig innifalið.

Brúðkaupsafmælið er aðeins á  33.500 krónur fyrir parið.*
*Er ekki í boði í maí, júní, júlí og ágúst.

Bókið á netinu vegna brúðkaupsafmælis  eða hringið í síma 514 8000.

Ef þið eruð með einhverjar séróskir þá vinsamlegast hafið samband og við munum reyna eftir bestu getu að verða við óskum ykkar.

Gerið brúðkaupsafmælið að eftirminnanlegum degi og njótið hans á Grand Hótel Reykjavík. Leyfið okkur að dekra við ykkur á þessum hátíðisdegi í lífi ykkar.

Það er einnig tilvalið að koma elskunni þinni á óvart með ógleymanlegri afmælis rómantík. Við getum útbúið gjafabréf fyrir tilefnið.


Listi yfir hjúskaparafmæli

1 ár – Pappírsbrúðkaup 19 ár – Granítbrúðkaup
2 ár – Bómulsbrúðkaup 20 ár – Porselínsbrúðakup
3 ár – Leðurbrúðkaup 23 ár – Túlípanabrúðkaup
4 ár – Blóma- eða keramikbrúðkaup 24 ár – Karatbrúðkaup
5 ár – Trébrúðkaup 25 ár – Silfurbrúðkaup
6 ár – Sykurbrúðkaup 30 ár – Perlubrúðkaup
7 ár – Ullarbrúðkaup 35 ár – Kóral- eða jaðarbrúðkaup
8 ár – Bronsbrúðkaup 40 ár – Rúbínbrúðkaup
9 ár – Leirbrúðkaup 45 ár – Safírbrúðkaup
10 ár – Tinbrúðkaup 50 ár – Gullbrúðkaup
11 ár – Stálbrúðkaup 55 ár – Smaragðsbrúðkaup
12 ár – Silkibrúðkap 60 ár – Demantsbrúðkaup
13 ár – Knipplingsbrúðkaup 65 ár – Króndemantabrúðkaup
14 ár - Fílabeinsbrúðkaup 70 ár – Járnbrúðkaup
15 ár – Kristalsbrúðkaup 75 ára – Atóm- eða gimsteinabrúðkaup
16 ár – Mánabrúðkaup

Skráðu þig í netklúbbinn okkar

more

Fréttir og tilboð

Gistitilboð í maí

Við fögnum sumrinu með flottu gistitilboði. Tilvalið að njóta fyrstu daga sumarsins í höfuðborginn...

Meira