Ummæli brúðhjóna
Ummæli brúðjóna á Grand Hótel Reykjavík
Grand brúðkaupsveisla sem heppnaðist frábærlega
Tinna Berg Rúnarsdóttir og Marinó Magnús Guðmundsson giftu sig í júní síðastliðnum og héldu veglega brúðkaupsveislu á Grand Hótel Reykjavík.
„Við skoðuðum marga staði og fengum tilboð víða áður en við ákváðum að velja Grand hótel fyrir veisluna. Okkur fannst tilboð Grand hótel koma best út, ekki síst þar sem gisting fylgdi með og öll þjónusta,“ segir Tinna.
„Við buðum gestum upp á kvöldverðarhlaðborð sem var mjög glæsilegt með mörgum frábærum réttum. Það voru tæplega níutíu manns í veislunni og gestirnir voru alsælir. Við fengum líka frábæra aðstoð við að skreyta salinn en móðir mín er blómaskreytingakona og sá um blómin,“ segir Tinna.
Hún segir að þau hafi boðið upp á óáfenga drykki með matnum en barinn hafi verið opinn fyrir þá sem vildu kaupa léttvín. „Við hjónin drekkum ekki léttvín og vildum því frekar bjóða upp á óáfenga drykki. Hins vegar gátu allir keypt sér vín sem það vildu og margir gerðu það. Þetta fyrirkomulag gerði veisluna líka viðráðanlegri fyrir okkur og enginn móðgaðist yfir því, enda er 2007 löngu liðið,“ segir Tinna hlæjandi.
„Við undirbúning veislunnar áttum við afar þægileg samskipti við starfsfólkið á hótelinu, sem vildi allt fyrir okkur gera. Enda var veislan hundrað prósent eftir okkar væntingum. Brúðartertan var á fimm hæðum, fallega skreytt og alveg meiriháttar góð. Í brúðarsvítunni beið okkar ávaxtakarfa og síðan fengum við morgunverð í rúmið og gátum dormað frameftir, þurftum ekkert að vera að flýta okkur að tékka út. “
Brúðkaupsmyndin er af þeim Tinnu og Marinó var tekin í þessu einstaklega fallega umhverfi við Varmá í Mosfellsbæ.
Sannkallaður hamingjudagur með öllum börnunum
Sigríður Marta Gunnarsdóttir og Ottó Sturluson gengu í hjónaband í júní síðastliðnum og héldu veglega 70 manna kaffiveislu á Grand Hótel Reykjavík. Um kvöldið beið þeirra gisting í brúðarsvítu á hótelinu með kampavíni og ávöxtum.
„Þetta var sannkallaður hamingjudagur, mikið um skemmtiatriði og starfsfólkið á Grand aðstoðaði okkur við allan undirbúning. Þegar við mættum úr myndatökunni vorum við strax dregin út á gólfið í brúðarvals og síðan var skálað fyrir okkur,“ segir Sigríður.
„Við eigum sjö börn og sex barnabörn og síðan er fullt af öðrum börnum í fjölskyldunni sem við vildum hafa með í veislunni. Það hentaði því mjög vel að hafa hana um miðjan daginn. Allir voru hæstánægðir með veitingarnar, sem voru einstaklega bragðgóðar,“ segir hún ennfremur.
Gisting í brúðarsvítu og morgunverður fyrir brúðhjónin fylgir þegar veislugestir eru fleiri en 50 og segir Sigríður að það hafi verið ákaflega notalegt fyrir þau brúðhjónin að koma inn í herbergið að veislu lokinni.
Myndin er af Sigríði og Ottó skera brúðartertuna í veislunni á Grand Hótel Reykjavík.
Ummæli brúðhjóna um brúðkaupsveisluna á Grand Hótel Reykjavík (PDF skjal 319 KB)
Fréttir og tilboð
Gistitilboð í maí
Við fögnum sumrinu með flottu gistitilboði. Tilvalið að njóta fyrstu daga sumarsins í höfuðborginn...
Meira







