Veislusalir

Veislusalir fyrir brúðkaupsveislur og brúðkaupsafmæli

Á Grand Hótel Reykjavík er fyrsta flokks aðstaða til veisluhalda og við höfum sérhæft okkur í klæðskerasaumuðum brúðkaupsveislum. Á hótelinu eru veislusalir sem rúma 30-300 gesti í borðhald.

Gullteigur
Veislusalir fyrir brúðkaup á Grand hótel Reykjavíker stærsti salurinn (345 fm) og tekur allt að 300 manns á hringborðum og 470 manns í standandi kokteilboð. Í miðjum salnum er dansgólf. Þar er líka gott svið fyrir hljómsveit eða skemmtiatriði og er tæknibúnaður af fullkomnustu gerð. Einnig er hægt að tvískipta salnum fyrir 110 og 130 manns. Fyrir framan Gullteig er huggulegt forrými og bar þar sem tilvalið er að hafa t.d. tónlistarflutning og fordrykk áður en sest er til borðs.

Hvammur
er á jarðhæð og tekur allt að 130 manns við hringborð. Salurinn (172 fm) er bjartur og hlýr með stórum og fallegum gluggum á eina hlið.

Háteigur A og B
Á fjórðu hæð eru tveir skemmtilegir samliggjandi salir, Háteigur A og B.
Þar er einstakt útsýni yfir borgina, sundin blá og fjallahringinn allt um kring. Stærri salurinn rúmar allt að 70 manns við hringborð og minni salurinn allt að 60 manns.

Miðgarður
er á jarðhæð og þar geta 400 manns setið við hringborð og 800 manns í standandi kokteilboð. Rýmið er hið glæsilegasta, opið og bjart og umvafið litríkum glerlistaverkum eftir Leif Breiðfjörð.

Setur
er á jarðhæð og þar geta 130 manns setið við hringborð. Salurinn er einkar opinn og bjartur, þar er þægilegt andrúmsloft. Hægt er að tengja Setrið við veitingastaðinn Brasserie með því að hafa hlaðborð fyrir framan salinn.

Brasserie Grand
er fyrsta flokks veitingastaður, með arni fyrir miðju. Það er notalegt að sitja við hlýjan arineldinn og njóta góðra veitinga. Staðurinn rúmar allt að 70 manns í sæti.

Við erum með færanlegt dansgólf og svið fyrir minni salina og getum aðstoðað við að útvega tónlist. Á hótelinu er tæknilega fullkominn búnaður fyrir allar mögulegar uppákomur. Hljóðkerfi og annar búnaður til hljóðs er af bestu gerð, sem og myndsýningarog tölvubúnaður.

Kynningarblöðungur um veislusali (PDF skjal) sem hægt er að prenta út:
Brúðkaupsveislur á Grand hótel  (PDF skjal 404 KB)

Við erum reiðubúin til þess að aðstoða við skipulagningu og undirbúning svo brúðkaupsveislan heppnist sem best.

Frekari upplýsingar gefa;
Tuna Dís Metya, sölufulltrúi, beinn sími: 514-8020, netfang
Hlín Íris Arnþórsdóttir, sölufulltrúi, beinn sími: 514-8034, netfang

more

Fréttir og tilboð

Sunnudags brunch í Setrinu

Það er notalegt að koma í sunnudags bröns í Setrinu á Grand Hótel Reykjavík og njóta þeirra rúmleg...

Meira