Fermingar

Fermingarveislan á Grandinu - Allt á einum stað

Fermingarveislan á Grand Hótel ReykjavíkFermingin er virðuleg athöfn þar sem að barn er tekið í fullorðinna tölu. Fermingin er formleg viðurkenning og staðfesting fyrir börnin að þau hafi náð ákveðnum áfanga í í samfélaginu. Fermingin er því stór áfangi í lífi unga fólksins og fyrir þeim skiptir fermingarveislan ekki síður miklu máli.
Á Grand Hótel Reykjavík getum við sett saman drauma veisluna fyrir þig. Hvort sem um er að ræða minni veislur eða stærri að þá höfum við salina til að hýsa gestina og veisluföngin til að gleðja þá.

Veislusalir
Á Grand Hótel Reykjavík er fyrsta flokks aðstaða til veisluhalda. Á hótelinu eru veislusalir sem rúma frá 30 og upp í 300 gesti í borðhald. Hægt er að stilla upp í sölunum og skreyta allt eftir ykkar óskum.

Veitingar fyrir fermingarveisluVeitingarnar í fermingunni
Úrval veislufanga fyrir fermingarveisluna er fjölbreytileg og henta réttirnir hvort sem er fyrir hádegisveislu, veislu um miðjan dag eða að kvöldi til. Í boði eru nokkrar gerðir af fermingarborðum.
Matreiðslu- og bakarameistarar laða fram það besta úr eldhúsi og bakarí hótelsins og þau geta sett saman fermingarrveisluna alveg eins og þið viljið hafa hana.

Komdu í heimsókn
Við bjóðum ykkur fermingarveisluna í einum pakka, salinn, matinn, undirbúninginn og fráganginn á eftir. Þið eruð velkomin að koma og skoða salina sem eru í boði og einnig að setjast yfir kaffibolla til að ræða skipulagninguna og að skoða saman matseðlana. Auðveldarar getur það ekki verið.

Á Grand Hótel Reykjavík er fyrsta flokks aðstaða og afburða þjónusta.
Aðgengi er til fyrirmyndar á hótelinu og næg bílastæði.

Nánari upplýsingar í síma 514-8000 eða hjá
Ásta Axelsdóttir, sölufulltrúi, beinn sími: 514-8041, netfang
Hlín Íris Arnþórsdóttir, sölufulltrúi, beinn sími: 514-8034, netfang

Upplýsingar um fermingarveisluna á Grand Hótel Reykjavík (341 PDF)

more

Fréttir og tilboð

Gistitilboð í maí

Við fögnum sumrinu með flottu gistitilboði. Tilvalið að njóta fyrstu daga sumarsins í höfuðborginn...

Meira