Veislusalir
Veislusalir fyrir fermingaveislur
Fermingin er stór áfangi í lífi unga fólksins þar sem að þau eru tekin í fullorðinna tölu, og fyrir fermingarbörnin skiptir fermingarveislan einnig miklu máli. Á Grand Hótel Reykjavík getum við sett saman drauma veisluna fyrir þig. Hvort sem um er að ræða minni veislur er stærri að þá höfum við salina til að hýsa gestina. Á hótelinu eru veislusalir sem rúma allt frá 30 og upp í 300 gesti í borðhaldi.
Gullteigur
er stærsti salurinn (345 fm) og tekur allt að 300 manns á hringborðum og 470 manns í standandi kokteilboð. Einnig er hægt að tvískipta salnum fyrir 110 og 130 manns. Fyrir framan Gullteig er huggulegt forrými og bar þar sem tilvalið er að hafa t.d. tónlistarflutning eða móttöku áður en sest er til borðs.
Hvammur
er á jarðhæð og tekur allt að 130 manns við hringborð. Salurinn (172 fm) er bjartur og hlýr með stórum og fallegum gluggum á eina hlið.
Háteigur A og B
Á fjórðu hæð eru tveir skemmtilegir samliggjandi salir, Háteigur A og B.
Þar er einstakt útsýni yfir borgina, sundin blá og fjallahringinn allt um kring. Stærri salurinn rúmar allt að 70 manns við hringborð og minni salurinn allt að 60 manns.
Miðgarður
er á jarðhæð og þar geta 400 manns setið við hringborð og 800 manna móttöku. Rýmið er hið glæsilegasta, opið og bjart og umvafið litríkum glerlistaverkum eftir Leif Breiðfjörð.
Setur
er á jarðhæð og þar geta 130 manns setið við hringborð. Salurinn er einkar opinn og bjartur, þar er þægilegt andrúmsloft. Hægt er að tengja Setrið við veitingastaðinn Brasserie með því að hafa hlaðborð fyrir framan salinn.
Brasserie Grand
er fyrsta flokks veitingastaður, með arni fyrir miðju. Það er notalegt að sitja við hlýjan arineldinn og njóta góðra veitinga. Staðurinn rúmar allt að 70 manns í sæti.
Á hótelinu er tæknilega fullkominn búnaður fyrir allar mögulegar uppákomur. Hljóðkerfi og annar búnaður til hljóðs er af bestu gerð, sem og myndsýningarog tölvubúnaður.
Aðgengi er til fyrirmyndar á hótelinu og næg bílastæði.
Kynningarblöðungur um veislusali (PDF skjal) sem hægt er að prenta út:
Fermingarveislur á Grand hótel (PDF skjal 404 KB)
Við erum reiðubúin til þess að aðstoða við skipulagningu og undirbúning svo fermingarsveislan heppnist sem best.
Frekari upplýsingar gefa;
Ásta Axelsdóttir, sölufulltrúi, beinn sími: 514-8041, netfang
Hlín Íris Arnþórsdóttir, sölufulltrúi, beinn sími: 514-8034, netfang
Fréttir og tilboð
Gistitilboð í maí
Við fögnum sumrinu með flottu gistitilboði. Tilvalið að njóta fyrstu daga sumarsins í höfuðborginn...
Meira







