Skötuveisla á Grand

Skötuhlaðborð á Þorláksmessu á Grand Hótel Reykjavík

Hín sívinsæla og árlega skötuveisla verður á Þorláksmessu á Grand hótel 23. desember frá kl. 12:00-14:00. Það hefur skapast notaleg hefð fyrir skötuhlaðborðinu á Grandinu og gestirnir eru sannarleg ánægðir með kæstu skötuna og góða þjónustu. Margir gestanna koma til okkar ár eftir ár og erum við að sjá sömu vinahópana, vinnufélagana og þjóðþekkta einstaklinga gæða sér á herlegheitunum.

Bóka á skötuveisluna núna!

Skötuveisla á Grand hótelMeðal þess sem verður á skötuhlaðborðinu er:

Kæst vestfirsk skata, kæst og söltuð skata, smáskata, saltfiskur og nætursaltaður fiskur.
Köld skötustappa að vestfirskum hætti, hnoðmör, kartöflur, rófur, smjör, bráðið smjör, hamsatólg og sild.
Soðkökur, flatkökur, rúgbrauð og laufabrauð.

Rammíslenskt og meira á aðeins 4.600 krónur.

Svo er viðeigandi fyrir þá sem vilja, að fá sér staup af íslensku brennivíni.

Kæst skata er eðalmatur. Þeim mun kæstari þeim mun betri
Hefðin fyrir því að gæða sér á kæstri skötu á degi heilags Þorláks má rekja til Vestfjarða þar sem hún hefur verið verkuð á þennan hátt til margra ára. Þessi siður hefur breiðst út um allt land og er orðinn órjúfanlegur hluti af jólahaldinu.
Við á Grand hótel viljum halda í gamlar hefðir og bjóða til veislu að vestfirskum hætti.

Það er mikilvægt að panta í tíma því eftirsóknin er mikil.

Hafðu samband í síma 514-8000 eða sendu okkur  tölvupóst

Skráðu þig í netklúbbinn okkar.

more

Fréttir og tilboð

Sunnudags brunch í Setrinu

Það er notalegt að koma í sunnudags bröns í Setrinu á Grand Hótel Reykjavík og njóta þeirra rúmleg...

Meira