Þorrahlaðborð

Þorrablótsveisla á bóndadaginn. Þorrahlaðborð og Þorrablót

Við á Grand Hótel Reykjavík ætlum að halda í  heiðri menningararfleifðinni og blása til þorrablótsveislu að kvöldi föstudags á Bóndadag, 20. janúar og þá helgi.

Þorrinn hefst á bóndadegi, í þrettándu viku vetrar, og þá er veturinn hálfnaður. Samkvæmt Þjóðsögum Jóns Árnasonar hafi húsbóndinn átt að bjóða þorra velkominn á bóndadegi með því að fara fyrstur á fætur allra manna. Eiga þeir að fara út í skyrtunni einni, vera bæði berlæraðir og berfættir, en fara í aðra brókarskálmina og láta hina svo lafa eða draga hana á eftir sér á öðrum fæti. Hoppa svo í kringum allan bæinn og bjóða þorra velkominn. Síðan eiga þeir að halda öðrum bændum úr byggðarlaginu veislu fyrsta þorradag.

Þorrahlaðborð á kvöldin -  miðast við 50 manns

Þorrahlaðborð á Grand Hótel Reykjavík er skemmtileg upplifurn. Við höldum í heiðri þessum skemmtilega sið og bjóðum gestum að njóta veitinganna í skemmtilegu umhverfi hótelsins.

Vinsamlegast athugið að Þorrahlaðborðið miðast við að 50 manns eða fleiri bóka. Verð aðeins 5.950 krónur og innifalið er bjór og staup af brennivíni

Hafðu samband í síma 514-8000 eða sendu okkur tölvupóst

Þorrahlaðborð í hádeginu -  miðast við 50 manns

Kíktu til okkar í hádeginu og njóttu þorrahlaðborðsins með vinnufélögunum eða vinum. Þorrakræsingar eins og þær gerast bestar og svo fylgir líka bjór eða gos með.

Þorrahlaðborðið í hádeginu er aðeins á 3.950 krónur og er bjór eða gos innifalið. Vinsamlegast athugið að Þorrahlaðborðið miðast við að 50 manns eða fleiri bóka.

Hafðu samband í síma 514-8000 eða sendu okkur tölvupóst


Þorrahlaðborðið á Grandinu

Þorrahlaðborð á Grand Hótel Reykjavík 2012Súrmeti
Hrútspungar og sviðasulta
Lundabaggar og bringukollar
Lifrapylsa og blóðmör
Hvalur

Nýmeti
Sviðakjammar,  sviðasulta og svínasulta
Blóðmör og lifrapylsa
Hákarl, síldarréttir, heitreyktur lax og hangikjöt
Með þorramatnum er borin fram rófustappa, grænar baunir, rúgbrauð og flatbrauð með ekta íslensku smjöri.

Heitir réttir
Glóðarsteikt lambalæri transerað í sal
Hreindýra bollur í gráðostasósu
Meðlæti

Hafðu samband í síma 514-8000 eða sendu okkur tölvupóst

Skráðu þig í netklúbbinn okkar.

more

Fréttir og tilboð

Sunnudags brunch í Setrinu

Það er notalegt að koma í sunnudags bröns í Setrinu á Grand Hótel Reykjavík og njóta þeirra rúmleg...

Meira