Gisting og spa

Dekraðu við þig á Grandinu - Gisting og spa heimsókn

Komdu elskunni þinni á óvart og bjóddu henni í gistingu og dekur á Grandinu. Þetta er líka tilvalin brúðargjöf fyrir nýgifta eða sem gjöf vegna brúðkaupsafmælis. Víð útbúum fyrir ykkur smekkleg gjafabréf.

Leyfðu okkur að dekra við þig í gistingu og notalegheitum.



Gisting og spa tilboð
Dekurtilboðið innifelur gistingu og morgunmat í executive hótelherbergi í turninum og dekurheimsókn fyrir tvo á Grand Spa.

Vetrarverð 21.900 krónur sem gildir október-apríl
Allt árið 30.900 krónur sem gildir í ár frá útgáfu

Sendu okkur fyrirspurn eða pantaðu tilboðið núna!



Betri hótelherbergi með öllum þægindum
Executive herbergin á Grand Hótel eru 23 - 30 m2 með Queen size rúmi. Herbergin eru í turni hótelsins og þaðan er stórkostlegt útsýni yfir borgina og út á sundin blá.
Mikill metnaður er lagður í þægindi og glæsileika á herbergjunum til þess eins að gestum okkar líði vel.


Dekrið á Grand Spa
Í Grand Spa heilsulind er rólegt og notalegt umhverfi þar sem hægt að fara í líkamsrækt, nudd og snyrtingu. Gestir fá handklæði og slopp til afnota meðan á dvölinni stendur.
Gisting og dekur á Grand Hótel ReykjavíkÍ heilsulindinni getur þú slakað á í heitum pottum og gufuböðum og fengið háls- og herðanudd hjá færustu nuddurum  eða bara einfaldlega gleyma sér fyrir framan notalegan arineldinn.
Í tækjasalnum er gott úrval af brennslu- og lyftingatækja sem gestir hafa afnot af.
Ef þú vilt njóta heilsulindarinnar frekar þá er gott að panta það með góðum fyrirvara en á Grand Spa er í boði mikill fjölbreytileiki í nuddi, eins og heil-, stóla- og slökunarnudd, djúpvefjarnudd og thainudd, svæða-og sogæðanudd.
Í lok heimsóknar er boðið upp lífrænt ræktað kaffi eða te. Einnig er hægt að kaupa hressandi heilsudrykki og holla næringu.

Þú munt fá góða slökun í björtu og aðlaðandi umhverfi.

Við tökum vel á móti þér.

more

Fréttir og tilboð

Sunnudags brunch í Setrinu

Það er notalegt að koma í sunnudags bröns í Setrinu á Grand Hótel Reykjavík og njóta þeirra rúmleg...

Meira