Hamingjustund
Hamingjustund eða Happy hour í Miðgarði á Grand Hótel Reykjavík
Allir eru velkomnir á hamingjustundina í Miðgarði. Miðgarður hýsir aðalmóttöku hótelsins og Miðgarð bistró bar. Miðgarður er miðja heimsins og var nafnið notað um hina byggðu jörð í norrænni goðafræði.
Það er tilvalið fyrir vini, vinahópa, vinnufélaga að setja niður eftir annasaman dag og slaka á í glæsilegum Miðgarði á Grand Hótel Reykjavík og njóta stundarinnar með góðum drykk. Helmings afsláttur er nú á öllum drykkjum á barnum.
Happy Hour er frá klukkan 17 til 19.
Hönnunin á Miðgarði endurspeglar íslensku náttúruöflin sem sköpuðu landið; eldur, ís og vatn. Móttökuna og bar hótelsins skartar einnig stærsta glerlistaverki landsins eftir Leif Breiðfjörð sem vísar til Völuspár, einu þekktasta kvæði Eddunnar og einnig fyrsta þáttar Hávamála sem kallast Gestaþáttur. Í Gestaþætti er mikil áhersla lögð á mannasiði og siðferðisleg samskipti milli gestgjafa og gesta og hvernig gestir skuli haga sér.
Komdu í hamingjustund í Miðgarð og njóttu stundarinnar eftir annasaman dag.
Fréttir og tilboð
Gistitilboð í maí
Við fögnum sumrinu með flottu gistitilboði. Tilvalið að njóta fyrstu daga sumarsins í höfuðborginn...
Meira







