Villibráðadagar
Villibráðahlaðborð með Úlfari Finnbjörnssyni 28. - 29. október
Villibráðadagar verða á Grand Hótel Reykjavík dagana 28. - 29. október.
Hann er kallaður villti kokkurinn, enda ærin ástæða til með útkomu Stóru bókarinnar um Villibráð. Bókin er uppfull af spennandi og nýjum villibráðauppskriftum og einnig er bókin alhliða kennslubók um villibráð.
Úlfar Finnbjörnsson segir íslensku villibráðina óvenjubragðmikla og einnig meinholla enda ekki hægt að finna fitusnauðara kjöt auk þess sem það er ómengað og án allra aukefna.
Úlfar Finnbjörnsson, matreiðslumeistari og höfundur bókarinnar, mun töfra fram nokkra rétti úr henni á sérstakri villibráðarhelgi dagana 28. - 29. október á Grand Hótel Reykjavík.
Verð 8.900 krónur á mann
Það er vissara að tryggja sér borð í tíma.
Bóka villibráðahlaðborð núna!
Einnig er hægt að taka við borðapöntunum í síma 514-8000 og á netfangið veitingar@grand.is
Gistitilboð með villibráðahlaðborðinu
Ef þú vilt njóta villibráðahlaðborðsins á Grand Hótel Reykjavík og einnig gista að veislu lokinni þá bjóðum við þér gistitilboð á góðu verði. Við bjóðum gistingu í tveggja manna herbergi á hótelinu og er morgunverðarhlaðborð innifalið.
Tilboð í gistingu í tveggja manna herbergi með morgunverði.
Aðeins 12.500 kr. á parið
Pantanir í síma 514 8000 eða á netfang
Réttir á villibráðarhlaðborðinu
Kaldir réttir
Grafin gæs með bláberjasósu
Reykt gæs með sesamvinegrette
Gæsalifrarmousse með lauksultu og kúrenum
Hreindýraterrine með títuberjasósu
Heitreykt hreindýrahjörtu með piparrótarsósu
Hreindýralifrarkæfa með sólberjahlaupi
Heitreyktur skarfur með gráðostafrauði
Rósapipargrafinn skarfur með mangósalsa
Þurrkaðar hreindýrapylsur með grænum pipar
Andaballadin með appelsínusósu
Reykt hrefnurúlla með sesamosti
Hrefnu og papajatartar með Úllallasósu
Gæsafillet með Grandmarnier
Kalt meðlæti
Brokkolísalat með rúsínum og rauðlauk
Melónu- og mangósalat með cumin
Cous cous salat með coriander og mynta
Eplasalat
Blandað salat
Berjasoðnar perur
Blönduð brauð
Heitir réttir
Rjúpusúpa
Léttsteiktar gæsabringur með bláberjasósu
Heilsteiktir hreindýravöðvar með villisveppasósu
Hrefnusteik með engifer og Terriakisósu
Léttsteiktar svartfuglabringur með valhnetu- og granateplasósu
Heitt meðlæti
Kartöflumús með baconi og lauk
Balsamikgljáður perlulaukur
Bakað fennel
Bakað blandað grænmeti
Sykurbrúnaðar rófur
Einnig er hægt að taka við borðapöntunum í síma 514-8000 og á netfangið veitingar@grand.is
Fréttir og tilboð
Stórt skref í umhverfismálum
Grand Hótel Reykjavík er fyrsta hótelið í borginni til að taka upp þriggja þátta sorpflokkun...
Meira






