Fréttir og tilboð
Vegna fjölda áskorana! Auka jólahlaðborð laugardaginn 12. des
04.12.2009
Vegna fjölda áskorana höfum við ákveðið að bæta við jólahlaðborði í hádeginu á laugardaginn 12. desember.
Jólahlaðborðið er í Brasserie Grand og eru allir hjartanlega velkomnir að gæða sér á veitingunum. Hlaðborðið er vel útilátið með jólalegum forréttum, köldum og heitum aðalréttum með sósum og meðlæti og girnilegt eftirréttahlaðborð að hætti Grand hótels.
Verðið fyrir hlaðborðið í hádeginu er 5.100 krónur fyrir fullorðna, 2.600 krónur fyrir 6-12 ára og börn undir fimm ár aldri fá frítt.
Vinsamlegast hafið samband og pantið á hlaðborðið því ásóknin er mikil.
Pantanir í síma 514 8000 eða á netfang
Fréttir og tilboð
Sunnudags brunch í Setrinu
Það er notalegt að koma í sunnudags bröns í Setrinu á Grand Hótel Reykjavík og njóta þeirra rúmleg...
Meira






