Fréttir og tilboð
Johan 'Guzz' Gustafsson á Food and fun
15.02.2010
Matreiðslumeistarinn Johan Gustafsson verður á Food and fun hátíðinni á Grand hótel og mun hann framreiða girnilegar kræsingar af mikilli list.

Johan Gustafsson, eða ”Guzz”, eins og hann er kallaður hefur matreitt á mörgum af þekktustu veitingastöðum í Gautaborg. Hann starfaði sem yfirmatreiðslumeistari á Grand hotel í Marstand í 12 ár og hann hefur einnig séð um fjölmargar veislur fyrir Carl Gustav Svíakonung og aðrar þjóðþekkta einstaklinga frá Norðurlöndunum og Evrópu.
Í dag rekur hann sinn eigin veitingastað Mama´s í sjávarþorpinu Marstand rétt utan við Gautaborg.
Okkur er það mikill heiður að taka á móti Johan ”Guzz” Gustafsson og það verður spennandi að fá að sjá og smakka það sem hann mun framreiða á Food and fun hátíðinni.
Fréttir og tilboð
Sunnudags brunch í Setrinu
Það er notalegt að koma í sunnudags bröns í Setrinu á Grand Hótel Reykjavík og njóta þeirra rúmleg...
Meira






