Fréttir og tilboð
Gullaldardjass undir stjórn Hauks Gröndals
17.08.2010
Það er ekki á hverjum degi sem landsmönnum gefst tækifæri til að hlýða á lifandi djass frá gullaldarárunum.
Á sunnudaginn 22. ágúst, kl. 20:00 á Grand hótel Reykjavík í Sigtúni 38 mun Sveiflusextettinn undir stjórn Hauks Gröndal færa okkur vandaða tóna frá gullaldarárum djasstónlistarinnar. Það verða frábærir söngvarar sem taka lagið með sextettinum og má þar nefna söngvarann Martin Roy Wade. Kristjana Stefánsdóttir mun einnig syngur nokkur lög og dúetta með Wade. Í Sveiflusextettinum eru þeir Haukur Gröndal sem spilar á saxófónn, Snorri Sigurðarson trompet, Ásgeir Ásgeirsson gítar, Vignir Stefánsson píanó, Þorgrímur Jónsson kontrabassi og Erik Qvick trommur.
Martin Roy Wade
Martin Roy Wade er skemmtikraftur af guðs náð og heimsþekktur fyrir flutning sinn á tónlist. Hann á auðvelt með að ná til áhorfendanna með skemmtilegum húmor og lifandi tilburðum.
Tónlistarstíl Martin Roy Wade má rekja til nútíma jasstónlistarinnar og einnig til swing og gullaldar djassins. Hann syngur oft með "klassískum" kvartettum og spilar einnig á píanó, bassa eða trommur.
Á tónleikum tekur Wade gjarnan slagara frá gömlum söngleikjamyndum frá þriðja áratugnum eins og má þar nefna tónlist eftir t.d. Irving Berlin, Jerome Kern, Georg Gershwin, Cole Porter og Richard Rodgers sem heimsþekktir söngvarar eins og Sammy Davis Jr., Frank Sinatra, Nat "King" Cole og Tony Bennett sungu á sínum tíma.
Léttar veitingar í boði; heitreikt laxasalat, carbonara pasta og queadillas með kjúklingi, þar sem hver réttur er aðeins á 1.800 krónur.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og er miðaverð 2000 krónur. Hægt er að kaupa miða við innganginn á Grand hótel Reykjavík og einnig inn á midi.is
Ekki missa af þessu gullaldarsvíngi eins og það gerist best.
Fréttir og tilboð
Sunnudags brunch í Setrinu
Það er notalegt að koma í sunnudags bröns í Setrinu á Grand Hótel Reykjavík og njóta þeirra rúmleg...
Meira






