Fréttir og tilboð
Fagnið nýju ári með Geir Ólafs
28.12.2011
Það er glæsilegur gala kvöldverður á gamlárskvöldi með fordrykk og lifandi tónlist á Grand Hótel Reykjavík.
Gleðskapurinn hefst 17:30 í Gullteig og í veitingastaðnum Brasserie Grand þar sem skálað er í freyðivin undir lifandi tónlist og svo er sest við glæsilegan kvöldverðar.
Það er alltaf skemmtilegt að upplifa stemninguna við áramótabrennurnar í Reykjavík og gefst gestum kostur á að fara með rútu til að skoða brennu og dreypa á íslensku brennivíni. Eftir brennuferðina er boðið upp á eftirrétt og kaffi en rétt fyrir miðnætti er safnast saman í Háteig á 4. hæð þar sem í boði er freyðivín og canapés og hægt að fara út á svalir til að fylgjast með flugeldasýningunni. Geir Ólafs skemmtir gestum og heldur uppi fjörinu. Hann mun án efa taka nokkra góða Frank Sinatra slagara eins og New York, Fly me to the moon og fleiri þekkt lög.
Það er gott útsýni yfir borgina frá svölunum og jafnvel hægt að vera inni og fylgjast með.
Nýja árinu er svo fagnað með glimrandi dansleik með hljómsveitinni Hafrót.
Meira
Fréttir og tilboð
Gistitilboð í maí
Við fögnum sumrinu með flottu gistitilboði. Tilvalið að njóta fyrstu daga sumarsins í höfuðborginn...
Meira







