Fréttir og tilboð

Stórt skref í umhverfismálum

08.02.2012

Umhverfismál á Grand Hótel ReykjavíkGrand Hótel Reykjavík er  fyrsta hótelið í borginni til að taka upp þriggja þátta sorpflokkunar kerfi á sínum herbergjum.
Kerfið er hluti af markvissri flokkun úrgangsefna sem nær til allrar starfsemi hótelsins s.s. eldhúss, veitingastaða, skrifstofa og herbergja.
Þetta er liður í þeirri vinnu að gera hótelið og starfsemi þess umhverfisvænni og að verða leiðandi á sviði umhverfismála.
Meðal starfsmanna hótelsins ríkir sterk umhverfisvitund og leita þeir stöðugt leiða til að minnka umhverfisspor  hótelsins og að stuðla að bjartri framtíð  ferðaþjónustunnar á Íslandi.

Á myndinni er umhverfisteymi Grand Hótel Reykjavík. Talið frá vinstri er Gísli Mack, birgðastjóri, Vignir Þ. Hlöðversson, yfirkokkur, Salvör Lilja Brandsdóttir, ráðstefnustjóri, Inga Hrönn Sverrisdóttir, yfirþerna, Ásmundur Edvardsson, veitingastjóri, Ólafur Torfason, stjórnarformaður og Gylfi Freyr Guðmundsson, aðstoðarhótelstjóri.

more

Fréttir og tilboð

Gistitilboð í maí

Við fögnum sumrinu með flottu gistitilboði. Tilvalið að njóta fyrstu daga sumarsins í höfuðborginn...

Meira